Jón Helgi Egilsson lektor: Æpandi mótsögn í falli Glitnis: Var uppgjör bankans 2008 hrein blekking?
„Hvernig má það vera að banki sem hafði fullyrt að lausafjárstaðan væri svo sterk ætti í svo miklum vandræðum með afborgun sem nemur 7,4% þess lausafjár sem sagt var aðgengilegt skömmu áður? Vandræðin voru svo mikil að hann þurfti að leita til Seðlabankans um þrautarvaralán?“
Þannig spyr Dr. Jón Helgi Egilsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, í bloggfærslu í dag. Jón Helgi fjallar um yfirtökuna á Glitni í lok september á síðasta ári sem hleypti af stað bankahruninu og bendir á að æpandi mótsögn hafi birst í þeirri lausafjárstöðu, sem bankinn hafði kynnt skömmu fyrir fallið og raunverulegri stöðu bankans. Hann segir þetta benda til þess að uppgjör bankans sumarið 2008 hafi „í besta falli verið hæpið og í versta falli hrein blekking.“
Jón Helgi segir í færslu sinni:
„Yfirtakan á Glitni í lok september á síðasta ári hleypti af stað atburðarrás sem varð til þess að íslensku bankarnir féllu og íslenskt efnahagslíf beið skipsbrot. Upphaf yfirtökunnar má rekja til óska Glitnis um þrautarvaralán frá Seðlabanka Íslands að upphæð 0,6 milljarðs evra. Seðlabankinn neitaði að verða við þessari ósk og ákvað þess í stað að taka bankann yfir að 75% hluta. Í framhaldi af því þvarr allt traust á íslensku bankana, íslenskt efnahagslíf og gjaldmiðilinn með afleiðingum sem við þekkjum. Beiðni um þrautarvaralán er þannig upphaf endaloka bankanna.
Beiðnin um þrautarvaralán er sérstaklega athyglisvert í ljósi uppgjörs bankans skömmu áður. Í uppgjöri bankans frá 30. júní er fullyrt að bankinn hafi aðgengi að 8,1 milljarði evra („Immediately available funds”) sem laust fé og geti gripið til þess án fyrirvara (bls. 22). Í kynningu Lárusar Welding (fremsta glæra) var þetta sérstaklega undirstrikað í kynningu á uppgjörinu.
Hvernig má það vera að banki sem hafði fullyrt að lausafjárstaðan væri svo sterk ætti í svo miklum vandræðum með afborgun sem nemur 7,4% þess lausafjár sem sagt var aðgengilegt skömmu áður? Vandræðin voru svo mikil að hann þurfti að leita til Seðlabankans um þrautarvaralán?
Þegar Glitnir verður uppvís að þessari mótsögn í orði og á borði þá er kannski ekki skrítið að tiltrú og traust hverfi á augabragði enda bendir þetta óneitanlega til þess að uppgjör bankans hafi í besta falli verið hæpið og í versta falli hrein blekking.“
Jón Helgi er lektor við Háskólann í Reykjavík og framkvæmdastjóri Seed Forum North America.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
