Mánudagur - 23.2 2009 - 18:47 - Ummæli ()

Tillögur Framsóknar: 20% niðurfelling húsnæðis- og fyrirtækjaskulda

framsokn1.jpgFramsóknarflokkurinn kynnti síðdegis tillögur sínar um aðgerðir til að efla atvinnulíf og koma til móts við skuldsett heimili.

Meðal þess sem lagt er til er að öll húsnæðislán verði færð frá bönkunum til Íbúðalánasjóðs og að sjóðurinn veiti svo flata 20% skuldaniðurfellingu vegna allra húsnæðislána.

Með þessu yrðu húsnæðislán bankanna afskrifuð meira en ella hefði verið við flutning frá gömlu bönkunum í þá nýju. „Til mótvægis eru lán til fyrirtækja afskrifuð um hlutfallslega lægri upphæð en tilefni var til og bönkunum bætt það með stuðningi ríkisins við fyrirtæki í vanda. Þetta felur ekki í sér útgjöld fyrir ríkið þar eð með þessu er verið að gera upp tap erlendra kröfuhafa í bankana,“ segir í tillögunum. Sjá tillögurnar í heild

Fyrirtækin fengju einnig 20% niðurfellingu skulda. „Það sama á við um fyrirtæki og heimili. Raunhæfasta og sangjarnasta leiðin er sú að eitt sé látið yfir alla ganga. Það er æskilegast hvort sem um er að ræða mjög illa stödd, sæmilega stödd eða vel stödd fyrirtæki,“ segir í tillögunum.

Framsóknarflokkurinn kynnti forsvarsmönnum stjórnarflokkanna tillögurnar í gærkvöldi og auk þess voru ræddar aðferðir við að koma á stjórnlagaþingi sem allra fyrst.

Auk þess vilja Framsóknarmenn að stjórnvöld kynni strax Alþjóðagjaldeyrissjóðnum kröfu stjórnvalda um að Seðlabankanum verði heimilað að lækka vexti. „Við núverandi aðstæður er erfitt fyrir AGS að hafna slíkri beiðni.“

Sjá tillögurnar í heild.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar