Innlent - mánudagur - 23.2 2009 - 20:26

Guðlaugur Þór: Greiddi um 24 milljónir fyrir ráðgjöf utan heilbrigðisráðuneytis

heilbrigdisstofnun-sudurnes.jpgGuðlaugur Þór Þórðarson þáði umfangsmikla ráðgjöf frá ýmsum aðilum utan ráðuneytisins meðan hann var heilbrigðisráðherra frá vori 2007 og fram til þess að hann lét af embætti á dögunum. Samtals voru greiddar tæpar 24 milljónir króna fyrir ráðgjöf um heilsustefnu, lyfjamál, fjölmiðlaframkomu og fleira. Stærsta verkefnið var úttekt á heilbrigðisstofnun Austurlands og Suðurnesja, en fyrir það voru greiddar tæpar 11 milljónir króna.

Eyjan óskaði upplýsinga um þessa ráðgjöf í framhaldi af ummælum Ögmundar Jónassonar, núverandi heilbrigðisráðherra, í fréttum Ríkisútvarpsins um helgina,  að sá fjárhagslegi ávinningur sem fyrrverandi ráðherra segðist hafa náð fram í heilbrigðisgeiranum hafi verið byggður „á óljósum markmiðslýsingum sem verktakar unnu fyrir hann“. Það eina sem væri handbært væru reikningar sem þeir sendu ráðuneytinu.

Heilbrigðisráðuneytið svaraði Eyjunni í dag og upplýsti að eftirtaldir 8 ráðgjafar hefði starfað fyrir ráðherrann frá 26. maí 2007 til 1. febrúar 2009 og fengið greitt frá ráðuneytinu:

1.  Rannsóknir og Greining ehf (Inga Dóra Sigfúsdóttir)
Maí 2008 – nóvember 2008:
Vinna við mótun, gerð og kynningu á heilsustefnu auk vinnu við gerð frumvarps um Lýðheilsustöð og mótun hugmynda að framtíðarskipulagi málefna Lýðheilsustöðvar,  Landlæknis og fleira.
Kr. 1.494.000

2.  Hið íslenska ráðgjafahús (Kristján Vigfússon)
Sept. 2007 – okt. 2008
Ráðgjafavinna vegna lyfjamála.
Kr. 2.540.424

3.  Franca ehf (Eggert Skúlason)
Des. 2007 – nóv. 2008
PR vinna fyrir ráðherra/ráðuneyti/fjölmiðlaþjálfun forstöðumanna
Kr. 2.528.816

4.  S & G Ráðgjöf ehf (Guðjón Magnússon)
Des. 2007 – des. 2008
Ráðgjafastörf/sérfræðistörf fyrir heilbrigðisráðherra
Kr. 1.739.050

5.  Andi ehf (Þorgrímur Þráinsson)
Ágúst – desember 2008
Sérverkefni vegna heilsustefnu/framkvæmd heilsustefnu ráðherra
Kr. 2.614.500

6.  Argyron ehf (Ragnar Þórir Guðgeirsson)
20. ágúst 2008 – 31. jan. 2009
Úttekt á Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, ráðgjöf vegna breytinga á skipulagi heilbrigðisstofnana, aðild að nefnd um málefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Kr. 10.672.762

7.  Reykjavík Economics (Magnús Árni Skúlason)
13. júní – 5. okt. 2008
Ýmis sérfræðistörf fyrir ráðherra.
Kr. 924.138. 

8.  DP Lögmenn/DP Fasteignir (Dögg Pálsdóttir)
5. okt. – 22. maí 2008
Vinna við frumvarp um sjúkraskrár og frumvarp um heilbrigðisstarfsmenn.
Kr. 1.322.344

Upplýsinga innan sviga um forráðamenn/eigendur ráðgjafarfélaganna hefur Eyjan aflað sérstaklega.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.

Facebook vinir