Davíð Oddssyni Seðlabankastjóri var heitt í hamsi í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld þar sem hann hélt uppi mjög afdráttarlausum vörnum fyrir Seðlabankann og stjórnendur hans jafnt í aðdraganda bankahrunsins sem eftir það. Hann lagði áherslu á að hann hefði allt frá árinu 2006 varað ríkisstjórnina alvarlega við yfirvofandi hruni án þess að brugðist hefði verið við því.
Margt fréttnæmt kom fram í viðtalinu og mun Eyjan fjalla um það síðar í kvöld.
