Þriðjudagur - 24.2 2009 - 07:17 - Ummæli ()

Össur: Trúverðugleiki sjálfstæðismanna í rúst – leggjast allir í vörn fyrir Seðlabankastjóra

ossur200×30011.jpgÖssur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir sjálfstæðismenn leggja trúverðugleika sinn í rúst með því leggjast allir sem einn í vörn fyrir Seðlabankastjóra, sem hefur ekki reynst starfi sínu vaxinn.
Þetta er haft eftir Össuri í Fréttablaðinu í dag þar sem hann er spurður um framgöngu sjálfstæðismanna í gær þegar þeir gengu hart fram vegna frestunar þingfundar.

Össur segist vita hvað þetta fólk sagði þegar hann var vann með því í ríkisstjórn og til frekari skýringar segir Össur:

„Það voru ekki aðeins ráðherrar Samfylkingar í fyrri stjórn sem töldu þörf á því að skipta um í yfirstjórn Seðlabankans.“

Össuri finnst framganga Höskuldar Þórhallssonar, fulltrúa framsóknarmanna sem stöðvaði afgreiðslu Seðlabankafrumvarpsins úr nefnd, alveg eðlileg.
Framsókn þurfi að syngja sína aríu til að minna á þörfina fyrir þá til að verja ríkisstjórnina. Hann telur þó að um hafi verið að ræða sólóaríu Höskuldar, sem ekki var samin af formanni flokksins.
Össur telur Höskuld á rangri braut og að þetta sé ekki rétta aðferðin til að minna á mikilvægi Framsóknarflokks.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar