„Kolbrún veltir fyrir sér þjóðfélagi án Höskulda“ er fyrirsögnin sem Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra valdi sér á Facebook-síðu sinni á netinu í dag. Ekki dylst að með þessu vísar hún til Höskuldar Þórhallssonar þingmanns Framsóknarflokksins sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa sakað um að tefja afgreiðslu Seðlabankafrumvarpsins á Alþingi.
„Þjóðfélag án Höskulda“ kallast á við þekkt slagorð á sviði félagslegra réttinda, „þjóðfélag án þröskulda“.
Færsla Kolbrúnar hefur vakið talsverða athygli meðal vina hennar á Facebook sem eru tæplega 300. Síðan er lokuð öðrum en þeim sem Kolbrún hefur samþykkt. Einn þeirra sem skoðaði síðu Kolbrúnar sagði á bloggi sínu að honum finndist það ekki passa að hafa vilja þingmanns til að hafa sjálfstæða skoðun í flimtingum og bera saman þjóðfélag án þröskulda og Alþingi án Höskulda.
