Föstudagur - 27.2 2009 - 17:25 - Ummæli ()

Sigurður Einarsson segir Seðlabankann ekki hafa brugðist við varúðarorðum Kaupþings

sigurdur-einarsson.jpgSigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, segir að Seðlabanki Íslands hafi ekki brugðist við „eindregnum varúðarorðum“ frá forsvarsmönnum Kaupþings í apríl í fyrra um að íslenska bankakerfið stæði ekki nógu traustum fótum.

Haft er eftir Sigurði í frétt á mbl.is að það sem Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segi nú um eindregnar viðvaranir við hruni bankakerfisins sé ekki alls kostar rétt og fari í öllum meginatriðum gegn því sem fram hafi komið í opinberum gögnum frá Seðlabankanum um stöðu íslenska bankakerfisins í fyrra.

Sigurður segir að þeir Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings hafi setið fundi með Geir H. Haarde og síðan, að hans tillögu, með seðlabankastjóra þar sem þeir hafi greint frá áhyggjum sínum af stöðu mála. „Það er skemmst frá því að segja, að það var ekki brugðist við okkar varúðarorðum með neinum hætti. Seðlabankanum tókst ekki að útvega sér fé, sem var algjörlega nauðsynlegt, og því versnaði staðan í bankakerfinu jafnt og þétt eftir því sem leið á árið,“ segir Sigurður í samtali við mbl.is.

Sigurður sendi bréf til Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, og Davíðs Oddssonar, þáverandi seðlabankastjóra, 9. apríl í fyrra þar sem hann lýsti yfir áhyggjum sínum af stöðu mála hér á landi. Í kjölfarið, sátu Sigurður og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, fundi með Geir og Davíð. „Það var ekki brugðist við okkar áhyggjum með neinum hætti, sem er eiginlega með ólíkindum í ljósi þess að Kaupþing var langsamlega stærsti banki landsins. Áhyggjurnar voru líka á rökum reistar, eins og síðar kom í ljós.,“

Í bréfinu sem Sigurður sendi Geir og Davíð er sagt að yfirlýsingar forsætisráðherra, um íslenska fjármálakerfið, hefðu haft góð áhrif á umtal um stöðu kerfisins. Hins vegar væri staðan „brothætt“ og brýnt væri að bregðast við með afgerandi hætti. Illa gæti farið ef ekkert yrði gert. Sigurður benti í bréfinu á nokkrrar leiðir sem hann taldi getað lagað stöðuna.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar