Tryggvi Þór Herbertsson segist í Fréttablaðinu í dag ekki hafa lagst gegn því að Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri, fengi að skrifa kafla um eignir Íslendinga í skattaskjólum.
Kaflinn átti að birtast í skýrslu nefndar sem falið var að gera úttekt á íslenska skattkerfinu. Tryggvi Þór segist ekki muna til þess að hafa setið fund í nefndinni þar sem tillaga Indriða var rædd.
Fram hefur komið að Indriði lagði til við nefndina, sem skipuð var af fjármálaráðherra í febrúar 2006, að í skýrlsunni yrði kafli um skattaskjól og erlend eignatengsl við Ísland, sem hann sjálfur myndi skrifa.
Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ og nefndarmaður, mun hafa stutt tillögu Indriða, en helst hefðu Tryggvi Þór og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, verið á móti því að kaflinn yrði í skýrslunni.
Vilhjálmur Egilsson staðfestir að hann hafi ekki verið fylgjandi tillögu Indriða, en Indriði hafi ekki kynnt neina úttekt á skattaskjólum heldur „smávegis texta eftir sjálfan sig“, unninn upp úr grein sem hann hafði skrifað.
Nefndarmönnum hafi ekki þótt textinn eiga erindi í skýrsluna. Enn fremur hafi ekkert verið í textanum sem hafi með það að gera sem nú sé í umræðunni varðandi skattaskjól og eignir Íslendinga þar.
Hann hafi viljað gera víðtækari úttekt sem sneri að því að skoða hvað aðrar þjóðir gerðu til að laða til sín skattgreiðendur.
„Þannig að það var ekki þannig að við hefðum verið að beita okkur gegn umfjöllun um skattaskjól heldur þvert á móti. Ef við hefðum fengið að ráða þá hefði verið vönduð úttekt á því hvað aðrar þjóðir eru að gera til að laða til sín skattgreiðendur. Sem er annað heiti á því sem Indriði kallar skattaskjól,“ segir Vilhjálmur í samtalinu við Fréttablaðið og segir að „við“ í þessu sambandi eigi við hann og Tryggva Þór.
