eyjan.is

Föstudagur 27.02.2009 - 08:41 - Ummæli ()

Norðmaðurinn Svein Harald Öygard bankastjóri Seðlabankans til bráðabirgða

sedlabankastjiri.jpgNorðmaðurinn  Svein Harald Öygard verður aðalbankastjóri Seðlabankastjóri Íslands næstu mánuði. Forsætisráðuneytið tilkynnti þetta í morgun.

Arnór Sighvatsson aðalhagfræðingur bankans verður aðstoðarbankastjóri.

Eins og fram kemur í frétt Eyjunnar fyrr í dag dregur Sigurður Líndal lagaprófessor í efa að setning erlends manns í opinbert embætti hér á landi standist stjórnarskrána. Þar er ákvæði um að óheimilt sé að skipa mann sem ekki er íslenskur ríkisborgari í embætti á Íslandi.

Tilkynning forsætisráðuneytisins er svohljóðandi:

„Forsætisráðherra hefur í dag í samræmi við ákvæði II til bráðabirgða með lögum um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands sett Svein Harald Öygard, tímabundið í embætti seðlabankastjóra og Arnór Sighvatsson tímabundið í embætti aðstoðarseðlabankastjóra. Þeir hafa þegar hafið störf.

Í breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands sem samþykkt voru á Alþingi í gær og öðluðust gildi í dag hefur forsætsiráðherra sett Svein Harald Öygard, tímabundið í embætti seðlabankastjóra og Arnór Sighvatsson tímabundið í embætti aðstoðarseðlabankastjóra. Þeir hafa þegar hafið störf. Settur seðlabankastjóri og settur aðstoðarseðlabankastjóri skulu gegna embætti þar til skipað hefur verið í stöðurnar á grundvelli auglýsinga samkvæmt ákvæðum laganna.

Svein Harald Øygard, Cand.Oecon., er fæddur árið 1960 og hlaut meistarapróf í hagfræði frá Oslóar Háskóla árið 1985, með þjóðhagfræði sem aðalgrein.

Svein Harald var aðstoðarfjármálaráðherra Noregs á árunum frá 1990 -1994. Meðal ábyrgðarsviða hans voru þjóðhagfræði, samþætting stefnu í ríkisfjármálum og peningamálastefnu, löggjöf á fjármálasviði og skattamálefni. Hann leiddi m.a. endurskoðun skattalöggjafar í Noregi árið 1992 og sat í starfshópi norsku ríkisstjórnarinnar um hugsanleg efnhagsleg áhrif inngöngu Noregs í Evrópusambandið. Svein Harald tók þátt í vinnu norskra stjórnvalda er þau tókust á við banka- og gjaldmiðilskreppuna þar í landi árið 1992. Hann sat í efnahagsráði norska Verkamannaflokksins til ársins 2000.

Á árunum 1983 – 1990 starfaði Svein Harald í seðlabanka Noregs, fjármálaráðuneytinu og á norska- Stórþinginu. Í fjármálaráðuneytinu hafði hann yfirumsjón með verðbólgugreiningum og tengslum launa og verðlags við aðrar þjóðhagsstærðir.

Svein Harald hefur frá árinu 1995 starfað fyrir ráðgjafarfyrirtækið McKinsey&Company víða í Evrópu, í Bandaríkjunum, Suður-Ameríku, Asíu, Mið-Austurlöndum og Afríku og var framkvæmdastjóri McKinsey&Company í Noregi frá 2005 – 2007. Í starfi sínu hjá McKinsey &Company hefur Svein Harald einkum unnið að verkefnum og stefnumótun á sviði orku og iðnaðar, skipulagi opinberrar stjórnsýslu og verkefnum tengd fjármálum.

Arnór Sighvatsson, settur aðstoðarseðlabankastjóri, hefur verið aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands frá árinu 2004. Hann var áður staðgengill aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands frá 1995 og deildarstjóri á hagfræðisviði bankans, en hann hóf störf í bankanum árið 1990. Um tveggja ára skeið var Arnór aðstoðarmaður framkvæmdastjóra hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington. Þá starfaði hann um hríð við háskólakennslu í Bandaríkjunum og vann um skeið á Hagstofu Íslands.  Arnór lauk doktorsprófi í hagfræði árið 1990 frá Northern Illinois University í Bandaríkjunum, en hafði áður lokið mastersprófi þaðan í sömu grein.  Arnór hefur ritað fjölda greina í fræðileg og fagleg tímarit um efnahagsmál og peningamál, einn eða í samvinnu við aðra. Meginviðfangsefni Arnórs í þessum greinum hafa verið alþjóðleg efnahagsmál, alþjóðaviðskipti, gengismál og peningamál. Þá hefur Arnór sinnt ýmsum nefndar- og stjórnarstörfum fyrir Seðlabanka Íslands. „


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is