Innlent - mánudagur - 2.3 2009 - 13:45

Ríkisskattstjóri: Bankamenn tóku þátt í skattsvikum. Gengið lengra hér en í öðrum löndum

rsk-rikisskattstjori.jpgÁkveðnir starfsmenn viðskiptabankanna þriggja, sem hrundu í haust, stuðluðu að skattsvikum.

Þetta er mat Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskattstjóri. Rætt var við hann í hádegisfréttum RÚV í dag.

Í viðtalinu sagði Skúli að með ólíkindum væri hve umsvif íslenskra félaga skráðra í skattaskjólum hefðu vaxið. Hann kvaðst sannfærður um að ákveðnir starfsmenn hina föllnu banka hefðu átt þar hlut að máli.

Fram kom að ríkisskattstjóri hefur rökstuddan grun um að færsla félaga í skattaskjól erlendis hafi verið gerð beinlínis til að svíkja undan skatti. Þetta er þekkt aðferð um allan heim, en Skúli sagði að á Íslandi hefðu menn gengið að ýmsu leyti lengra en í öðrum löndum.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.