Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins er harðorður í garð ríkisstjórnarinnar í pistli sem hann birti á bloggi sínu á Eyjunni eftir hádegi í dag. Hann segir að nú þurfi stjórnin að fara að taka sér tak og skila því sem henni var ætlað og hún var mynduð um. Geri hún það ekki sé hún ekki bara að bregðast almenningi heldur hætti hún á að fyrir kosningar gleymist sú hætta sem stafi af efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Sigmundur Davíð vill að Alþingi verði rofið 12. mars, þ.e. á fimmtudag í næstu viku, svo kosningar geti farið fram 25. apríl.
Sigmundur Davíð spyr hver af skilyrðunum fyrir tilvist sinni ríkisstjórnin hafi uppfyllt. Hann svarar:
Hún hefur dregið lappirnar í stjórnlagaþingsmálinu, hún hefur ekki komið með lausnir til að bregðast við vanda heimilana og atvinnulífs og nú hefur komið í ljós að kjördagurinn hefur ekki einu sinni verið kynntur formlega.
Þá skrifar Sigmundur Davíð:
Nú ætti þingið að ákveða að þingrof fari fram 12. mars í samræmi við ákvörðun um að kosningar verði haldnar 25. apríl og sammælast um að fram að þeim degi verði tíminn nýttur til að gera ráðstafanir svo að efnahagslíf þjóðarinnar verði ekki rjúkandi rúst þegar nýtt þing tekur til starfa.
