Byr sparisjóður hefur skorað á Atla Gíslason alþingismann að draga til baka ummæli sem hann lét falla um sjóðinn í Silfri Egils í síðustu viku.
Í tilkynningu frá Byr segir að Atli hafi borið sparisjóðinn alvarlegum sökum í umræddum sjónvarpsþætti sem enginn fótur sé fyrir, samkvæmt frétt Vísis.is.
Atli nefndi í þættinum fjögur dæmi um „brotastarfsemi“ sem hann sagðist ekki skilja hvers vegna ekki væri verið að rannsaka, þar á meðal úttekt hjá Byr sparisjóði á 13,5 milljörðum króna í ágúst 2008 „þar sem stjórnendur vissu og máttu vita að fyrirtækið hefði ekki efni á þessu.“
Í bréfi Ragnars Z. Guðjónssonar sparisjóðsstjóra Byrs til Atla segir: „Sá félagsskapur lögbrjóta og þjóðníðinga, sem sparisjóðurinn tilheyrir svo augljóslega að þínu mati, hlýtur að teljast af vafasamara taginu. Þá eru fullyrðingar þínar um Byr sparisjóð því miður alrangar í nánast öllum atriðum.“
Hann segir að upphæðin sem Atli hafi nefnt hafi verið arðgreiðslur fyrir rekstrarárið 2007, mesta hagnaðarár í rekstrarsögu Byrs, sem hafi verið samþykktar einróma á aðalfundi sparisjóðsins. Ragnar segir auk þess ríkissjóð ekki hafa lagt fjármagn til Byrs eins og Atli hélt fram.
Atli segir í samtali við Vísi að von sé á yfirlýsingu frá honum í vikunni.
Umræddar arðgreiðslur eru síður en svo óumdeildar eins og t.d. má lesa um hér á vefsíðu Egils Helgasonar.
