Fimmtudagur - 5.3 2009 - 18:14 - Ummæli ()

3,5% skellur Samfylkingar. Stjórnarflokkarnir með meirihluta. Sjálfstæðisflokkur aftur stærstur.

althingishusid300×200.jpgFylgi Samfylkingarinnar tekur 3,5% dýfu í nýrri könnun Capacent Gallup á fylgi flokkanna fyrir RÚV og Morgunblaðið.

Sjálfstæðisflokkurinn er aftur orðinn stærsti flokkurinn með 29% fylgi og 20 þingmenn ef þetta væru kosningaúrslit. Sjálfstæðismenn bæta stöðuna um 3% frá síðustu könnun.

Samfylkingin er með 27,5% sem er 3,5% minna en síðast og 18 þingmenn. VG er með 25,9%, auka fylgið um 1,3%, og fengju 17 þingmenn og Framsókn 12,6% og 8 menn á þing, eða svipað fylgi og síðast.

Samanlagt fylgi núverandi stjórnarflokka samkvæmt könnuninni er hreint meirihlutafylgi: 53.4%, og 35 þingmenn.

Önnur framboð fengu samtals um 5% og ná ekki lágmarksfylgi til að koma manni á þing. Tæplega 80% af þeim sem svöruðu tóku afstöðu.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar