eyjan.is

Föstudagur 06.03.2009 - 13:05 - Ummæli ()

Ný könnun MMR: Samfylkingin stærsti flokkurinn. Stuðningur við ný framboð dalar

johanna-sig.jpgSamfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt nýrri könnun MMR sem birt var í dag. Fylgi flokksins mælist nú 30,5%. Þetta er veruleg aukning frá síðustu könnun sama aðila í febrúar 2009 þegar fylgið mældist 24,1%.

Fylgi Framsóknarflokksins dalar nokkuð og fer úr 14,9% í febrúar í 10% nú. Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn og Vinstri græna breytist lítið, fylgi Sjálfstæðisflokks mælist nú 29,3% og fylgi Vinstri grænna 22,7%.

Fjöldi þeirra sem sagðist myndu kjósa aðra stjórnmálaflokka en buðu fram síðast heldur áfram að minnka og stendur nú í 5,3%.

Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú líklegast kjósa? Samtals tóku 61% afstöðu til spurningarinnar, aðrir kváðust óákveðnir (22%), myndu skila auðu (11%), myndu ekki kjósa (2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3%).


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is