Laugardagur 07.03.2009 - 15:52 - Ummæli ( )
Færri vilja Jón Baldvin en Ingibjörgu Sólrúnu í formannsembætti Samfylkingar
Samkvæmt nýrri könnun Markaðs- og Miðlarannsókna (MMR) vilja fleiri Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur en Jón Baldvin Hannibalsson í formannsembætti Samfylkingarinnar.35% vildu Ingibjörgu Sólrúnu í embættið en 19% vildu Jón Baldvin. 46% sögðust hvorugt þeirra vilja.
Af þeim sem ætla að kjósa Samfylkinguna vildu 68% að Ingibjörg Sólrún gegndi formannsembættinu, en 13% styðja Jón Baldvin.
Könnunin var gerð í miðri vikunni og úrtakið var tæplega 900 manns. Svarhlutfall var næstum 90%.
Formannskjör Samfylkingarinnar fer fram á landsfundi flokksins 27.-29. mars.
Ummæli ( )
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
