Samkvæmt nýrri könnun Markaðs- og Miðlarannsókna (MMR) vilja fleiri Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur en Jón Baldvin Hannibalsson í formannsembætti Samfylkingarinnar.
35% vildu Ingibjörgu Sólrúnu í embættið en 19% vildu Jón Baldvin. 46% sögðust hvorugt þeirra vilja.
Af þeim sem ætla að kjósa Samfylkinguna vildu 68% að Ingibjörg Sólrún gegndi formannsembættinu, en 13% styðja Jón Baldvin.
Könnunin var gerð í miðri vikunni og úrtakið var tæplega 900 manns. Svarhlutfall var næstum 90%.
Formannskjör Samfylkingarinnar fer fram á landsfundi flokksins 27.-29. mars.
