Morgunblaðið segir frá því í dag að Kaupþing hafi lánað stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum samtals 478 milljarða króna nokkru fyrir bankahrunið.
Þetta kemur fram í lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum.
Upplýsingarnar eru samkvæmt stöðu útlána 30. júní 2008, þremur mánuðum fyrir hrun bankans.
Um er að ræða lán til Ágústs og Lýðs Guðmundssona, Ólafs Ólafssonar, Roberts Tchenguiz og félaga í þeirra eigu, en lánin voru ýmist veitt þeim persónulega, íslenskum fyrirtækjum sem þeir áttu eða eignarhaldsfélögum í Hollandi og á Tortola-eyju.
Lánin eru gengisbundin og flest veitt í gegnum Lúxemborg og London.
Umreiknuð miðað við stöðu krónunnar í dag eru þetta lánveitingar upp á rúmlega 573 milljarða króna, en sú upphæð fékkst staðfest hjá Kaupþingi í gær.
Lánveitingar til Ágústs og Lýðs í gegnum Exista-samstæðuna nema 169,1 milljarði króna. Exista hlaut 108,4 milljarða lán og eignarhaldsfélags þeirra bræðra, Bakkabraedur Holding BV, fékk 30,8 milljarða lán.
Exista var stærsti hluthafi Kaupþings þegar bankinn féll.
Útistandandi lán til Roberts Tchenguiz, sem situr í stjórn Exista, nemur samtals 230,2 milljörðum króna eða 278 milljörðum króna sé það umreiknað miðað við gengi.
Af lánveitingum til þrettán félaga í eigu Tchenguiz eru sjö skráð á Tortola-eyju.
Lánveitingar til Ólafs Ólafssonar og tengdra félaga nema 78,9 milljörðum króna.