Laugardagur - 7.3 2009 - 12:18 - Ummæli ()

Novator Björgólfs Thor selur 31% hlut í Netia í Póllandi – viðskipti upp á 17,9 milljarða króna

bjorgolfur-thor21.jpgFjárfestingafélagið Novator, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur selt 31% hlut sinn í Netia, sem er annað stærsta símafyrirtækið í Póllandi. Þetta kemur fram í frétt  Reuters-fréttastofunnar.

Í fréttinni segir að 118 milljón hlutir í Netia-símafyrirtækinu hafi verið seldir á mörkuðum í Varsjá í gær og að í kjölfar kreppunnar á Íslandi hafi margir búist við því að Novator myndi selja hlut sinn í Netia og 75% hlut sinn í P4, sem er fjórða stærsta farsímafyrirtækið í Póllandi.

Viðskiptin nú hafi verið upp á 158 milljónir bandaríkjadala, eða 17,9 milljarða króna.

Reuter segir Novator og Netia ekki hafa viljað tjá sig um málið.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar