Siv Friðleifsdóttir hreppti efsta sætið í prófkjöri Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi sem fram fór í gær. Helga Sigrún Harðardóttir varð í öðru sæti.
Kosningu lauk kl. 18, en kosið var í félagsheimili framsóknarmanna við Digranesveg í Kópavogi. Ellefu gáfu kost á sér í þau fimm sæti sem kosið er um.
Alls voru greidd 1068 atkvæði. 1020 atkvæði voru gild en 48 atkvæði voru ógild.
Staða fimm efstu frambjóðenda var þessi eftir að öll atkvæði höfðu verið talin:
Siv Friðleifsdóttir 498 atkvæði í 1. sæti
Helga Sigrún Harðardóttir 433 atkvæði í 1.-2. sæti
Una María Óskarsdóttir 494 atkvæði í 1.-3. sæti
Bryndís Bjarnarson 439 atkvæði í 1.-4. sæti
Svala Rún Sigurðardóttir 510 atkvæði í 1.-5. sæti
Eftir að tillit hefur verið tekið til ákvæða í reglum prófkjörsins um jafnrétti kynjanna, er lokaniðurstaðan um skipan framboðslistans þessi:
1. sæti Siv Friðleifsdóttir
2. sæti Helga Sigrún Harðardóttir
3. sæti Gestur Valgarðsson með 332 atkvæði í 1.-3. sæti
4. sæti Una María Óskarsdóttir
5. sæti Styrmir Þorgilsson með 414 atkvæði í 1.-5. sæti
