Sunnudagur - 8.3 2009 - 17:20 - Ummæli ()

Ingibjörg Sólrún hættir stjórnmálaþátttöku vegna heilsubrests

isg-haettir.jpgIngibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, tilkynnti á fjölmiðlafundi sem hún boðaði að heimili sínu á Nesvegi síðdegis, að heilsu sinnar vegna treysti hún sér ekki að svo stöddu til að starfa áfram í stjórnmálum.

„Ég hef einfaldlega ekki þá heilsu og það þrek sem þarf til þess að fara í kosningabaráttu á þessu vori og þau verkefni sem framundan eru,“ sagði Ingibjörg.

Hún sagðist nú verða að viðurkenna að hún væri veikari en hún hafi sjálf verið tilbúin að horfast í augu við og þurfi nú að snúa sér að eigin endurhæfingu og segja skilið við pólitíkina að svo stöddu. „Ég verð einfaldlega að játa mig sigraða,“ sagði hún.

Aðeins vika er síðan Ingibjörg tilkynnti á fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur að hún ætlaði bjóða sig fram í alþingiskosningum í apríl og sækjast eftir áframhaldandi formennsku í flokknum.

Ingibjörg segist hætta bæði þingmennsku og formennsku í Samfylkingunni. Nýr formaður flokksins verður því kjörinn á landsfundi flokksins 27.-29. mars n.k. Hún sagði landsfund flokksins þurfa að taka ákvörðun um nýja forsytu flokksins, hún sjálf mundi enga afstöðu taka til þess.

Á fundinum sögðust þau Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson hvorugt sækjast eftir formannsembættinu.

Ingibjörg Sólrún hefur gegnt formennsku í Samfylkingunni síðan 2005. Hún fór fyrst á þing fyrir Kvennalistann 1991 til 1994.

 


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar