eyjan.is

Mánudagur 23.03.2009 - 18:54 - Ummæli ()

Þau hlustuðu á febrúarskýrsluna. „Strax þá orðið erfitt að bregðast við,“ segir Geir

radherrar.jpgSkýrslan, sem birt var í dag um fundi sem Davíð Oddsson og aðrir fulltrúar Seðlabanka Íslands áttu með fulltrúum erlendra banka og matsfyrirtækjanna Fitch og Moodys í London í febrúar í fyrra, var lesin upp á fundi með þremur ráðherrum ríkisstjórnarinnar, þeim Geir H. Haarde, forsætisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og Árna Mathiesen fjármálaráðherra. Á fundinum, þar sem Davíð las upp skýrsluna voru einnig hinir seðlabankastjórarnir Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson, að því er haft er eftir Björgvini G. Sigurðssyni, fyrrverandi viðskiptaráðherra í Pressunni í dag. Þar segist Björgvin ekki hafa verið upplýstur um skýrsluna.

Geir H. Haarde sagði í viðtali við RÚV í dag, að um þetta leyti hafi strax verið orðið erfitt að bregðast við. Hann sagði bæði Seðlabankann og ríkisstjórn hafa „gert það sem hægt var til að vinda ofan af því að bankarnir væru orðnir stórir en að því varð hins vegar ekki hlaupið. Strax á þessum tímapunkti var orðið erfitt að selja eignir og minnka efnahagsreikning bankanna.“

Geir segir spurninguna kannski vera: „Hvað voru bankarnir sjálfir að gera til að sporna við við því vandamáli sem þeir horfðust sjálfir í augu við.“ Hann og minnir á að bankarnir hafi sjálfir fullyrt fram í september að þeir hafi verið búnir að tryggja fjármögnun út þetta ár. Hann segir bankana hafi verið búna að koma ár sinni þannig fyrir borð að þeim hafi ekki verið treyst.

Í skýrslunni kemur fram, að mikið vantraust á íslenskum bönkum var ríkjandi meðal erlendra bankamanna, sérstaklega á Glitni og Kaupþingi.

Í niðurstöðu skýrslunnar segir m.a.; „Íslensku bankarnir, Kaupþing og Glitnir alveg sérstaklega, hafa stefnt sér og það sem verra er, íslensku fjármálalífi, í mikla hættu, jafnvel í hreinar ógöngur, með ábyrgðarlausri framgöngu á undanförnum árum. Hættulegt er að hafast ekkert að í þeirri von að markaðir opnist óvænt og allur vandi verði þá úr sögunni. Nauðsynlegt er að hefjast þegar handa við að vinda ofan af stöðunni svo hún verði ekki óleysanleg.“

Sjá einnig frétt um skýrsluna hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is