Áform um skerðingu á fæðingarstofnunum Selfoss og Suðurnesja afturkölluð
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra hefur afturkallað áform um skerðingu á fæðingarþjónustu á sjúkrahúsunum á Selfossi og á Suðurnesjum.
Að sögn ráðherra munu starfsmenn á Suðurnesjum taka á sig verulega kjaraskerðingu í sparnaðarskyni.
Fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, hugðist spara í heilbrigðiskerfinu með því að leggja niður vaktþjónustu á skurðdeildunum á Selfossi og
Suðurnesjum, sem hefði þýtt að stór hluti fæðandi kvenna á þeim stöðum hefði orðið að leita til Reykjavíkur.
Ögmundur segir nú horfið frá þessum áformum, en hann tilkynnti starfsfólki á Heilbrigðisstofnun Suðurlands breytt áform á fundi í gær. Áður hafði hann tekið við um 4.300 undirskriftum, sem Samband sunnlenskra kvenna safnaði til að mótmæla skerðingaráformunum.
Heilbrigðisráðherra mun greina nánar frá þessum breytingum á blaðamannafundi í dag.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
