Laugardagur - 28.3 2009 - 14:17 - Ummæli ()

Eva Joly mætt til starfa. Fær bankastjóralaun fyrir aðstoð við saksóknara bankahrunsins

eva_joly_021.jpgEva Joly fær bankastjóralaun, 1,3 milljónir króna á mánuði, fyrir aðstoð sína við sérstakan saksóknara sem rannsakar bankahrunið. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra, Ólafur Þór Hauksson saksóknari og Eva Joly héldu í dag þar sem kynntur var samstarfssamningur við hana.

Fram kom á fundinum að Eva verður hér fjóra daga í hverjum mánuði um óákveðinn tíma. Hún hefur ráðið sér íslenskan aðstoðarmann.

Áætlaður heildarkostnaður ríkissins vegna starfa Evu er um 70 milljónir á þessu ári. Innifalið í þeirri tölu eru laun aðstoðarmanns, annarra sérfræðinga og annar kostnaður auk launa hennar. Störf Evu og sérfræðinga á hennar vegum felast m.a. í ráðgjöf um meðferð réttarbeiðna milli landa auk ráðgjafar um tengsl við erlenda sérfræðinga á ýmsum sviðum s.s. endurskoðendur vegna greiningar á bókhaldsgögnum og uppgjörum banka, rannsókn eignatengsla og við að rekja slóð fjármagns milli bankastofnana og ríkja.

Á blaðamannafundinum kvaðst Eva bjartsýn á að það takist að upplýsa málin en benti á að það gæti tekið tíma.

Heildarkostnaður við rannsókn sérstaks saksóknara á bankahruninu er áætlaður 250-270 milljónir á ári en gæti hækkað. Saksóknari hefur fengið leyfi til að ráða allt að fjórtán starfsmenn til viðbótar þeim sex sem þegar eru komnir til starfa.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar