Keppir Kristján Þór á ný við Þorgerði Katrínu? Sjálfstæðiskonur uggandi um stöðu varaformannsins
Ekki er útilokað að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fái mótframboð við kjör varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem nú er haldinn í Laugardalshöllinni. Einstakir ræðumenn hvöttu til þess í gær. Nafn Kristjáns Þórs Júlíussonar er sérstaklega nefnt í því sambandi tapi hann fyrir Bjarna Benediktssyni í formannskosningunni. Kjör formanns og varaformanns er á dagskrá síðdegis á sunnudag.
Morgunblaðið segir frá þessu í dag.
Blaðið segir að konur á landsfundinum sem rætt hafi verið við séu áhyggjufullar yfir stöðu kvenna í flokknum. Sérstaklega sé nefnt að sá karlanna sem bíður ósigur í kjöri til formanns kunni að lýsa yfir framboði til varaformanns en sú kosning fer fram að strax að loknu formannskjöri.
Morgunblaðið segir að Kristján Þór Júlíusson hafi ekki útilokað framboð til varaformanns. Blaðið kveðst hafa heimildir fyrir því að hann hafi leitað til einstakra þingmanna flokksins í síðustu viku með stuðning í huga í það embætti.
Rifja má upp að Kristján Þór keppti við Þorgerði Katrínu um varaformannsembættið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins haustið 2005. Þá hafði Þorgerður betur, hlaut 62,3% atkvæða en Kristján Þór hlaut 36,3%.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
