Laugardagur - 28.3 2009 - 12:09 - Ummæli ()

Kristján Þór aðeins í formanns- framboði. Segir framboð til varaformanns ekki koma til greina

kristjanthorjuliusson.jpgKristján Þór Júlíusson alþingismaður vísar á bug fréttum um að hann íhugi að bjóða sig fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins nái hann ekki kjöri sem formaður í keppninni við Bjarna Benediktsson alþingismann.

Kristján Þór segir í yfirlýsingu sem barst Eyjunni um hádegisbil: „Vegna orðróms á netmiðlum um að ég hyggist bjóða mig fram í varaformannsembætti Sjáflstæðisflokksins, vil ég taka fram eftirfarandi: Ég hef boðið mig fram á landsfundi til að gegna formannsembætti í Sjáflstæðisflokknum. Af minni hálfu kemur ekkert annað til greina, enda er ég vanur að ganga hreint til verks.“

Rétt er taka fram að frétt Eyjunnar um þetta mál í morgun var byggð á frásögn í Morgunblaðinu í dag eins og skýrt kom fram.

Kristján Þór segir ennfremur í yfirlýsingunni sem Eyjunni barst: „Ég vil svo líka fá að nota þetta tækifæri og þakka þeim rúmlega sjö hundruð landsfundarfulltrúum sem mættu á hóf mér til stuðnings í Ásmundarsafni í gær.“

Stuðningsmenn Kristjáns Þórs vilja í samtölum við Eyjuna túlka þetta fjölmenni sem stuðning við formannsframboð hans og eru bjartsýnir á að hann nái kosningu í formannskjörinu síðdegis á morgun, sunnudag.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar