Sunnudagur - 29.3 2009 - 16:03 - Ummæli ()

Bjarni Benediktsson alþingismaður nýr formaður Sjálfstæðisflokksins

bjarnibenlandsfundi.jpgBjarni Benediktsson alþingismaður var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöllinni í dag. Hann hlaut 990 atkvæði, 58,1%. Keppinautur hans Kristján Þór Júlíusson fékk 688 atkvæði eða 40,4%.

Aðrir fengu 10 atkvæði eða færri.

Alls voru greidd atkvæði 1705. Auðir og ógildir seðlar voru 5.

Bjarni var ákaft hylltur af landsfundarfulltrúum þegar úrslitin voru ljós.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar