eyjan.is

Þriðjudagur 31.03.2009 - 19:59 - Ummæli ()

Kom Baugur eignum undan? Gaumur keypti skíðasetur og fleiri fasteignir af Baugi Group

baugurlogoid.jpgGaumur, eignarhaldsfélag Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, keypti fjórar fasteignir af Baugi Group fyrir hundruð milljóna króna síðastliðið haust. Skiptastjóri þrotabús Baugs skoðar nú hvort verðmætum hafi með þessu verið skotið undan. Gaumur er stærsti einstaki eigandi Baugs, sem fór í gjaldþrotameðferð fyrr í þessum mánuði.

Tvær þessara fasteigna eru í London, ein í Kaupmannahöfn og sú fjórða er skíðasetur í Frakklandi, að því er greint var frá í fréttum Sjónvarps. Skiptastjóri getur krafist riftunar á samningunum og er nú sagður kanna hvort aðferðin við söluna hafi verið óeðlileg og hvort verðið hafi verið viðunandi.

Jón Ásgeir Jóhannesson segir viðskiptin hafa farið fram eftir mat þriðja aðila og að hann telji þau með öllu eðlileg.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is