Baywatch-töffarinn David Hasselhoff á sér marga aðdáendur, jafnvel hér á landi, en hann kallaði ekki allt ömmu sína sem strandvörðurinn Mitch Buchannon í Baywatch-þáttunum, sem engin missti af á árunum 1989-2000.
Hasselhoff hefur ekki bara heillað með vöðvastæltum, kaffibrúnum skrokknum og stjörnuleiknum í Baywatch heldur er hann líka liðtækur söngvari og hefur átt lög á vinsældalistum, eins og til dæmis Jump In My Car sem komst í þriðja sæti breska vinsældalistans árið 2006.
Nú hafa dætur hans tvær, Taylor Ann, 18 ára, og Hayley Amber, 16 ára, fetað í fótspor pabba að hans áeggjan og munu koma fram sem söngtvíeyki, hugsanlega undir nafninu The Hoff Drops.
Hasselhoff er að búa þær undir það sem koma skal, sem sagt ekkert minna en ofur-stjörnu-feril.
Hann hefur haft samband við fræga lagahöfunda og bókað tíma í upptökur, en ætlar ekki að vera umboðsmaður þeirra í fullu starfi heldur hefur fengið útvarpsmanninn Scott Mills til að taka stelpurnar að sér.
Scott, sem flutti inn til Hasselhoff-fjölskyldunnar í viku í tengslum við raunveruleikaþátt, segir að David sé fullur eftirvæntingar.
„Hann á sér enga ósk heitari en að þetta gangi upp og talar eiginlega ekki um neitt annað,“ segir Scott.
Scott upplýsti þó að stelpurnar væru ekkert of ánægðar með pabba gamla, ekki síst nafnið sem hann valdi þeim, The Hoff Drops.
„Hasselhoff vill ráða nafninu en stelpurnar eru ósáttar svo það er ekki víst að þetta nafn verði ofan á þegar til kemur,“ sagði Scott.
Þá ætlar Hasselhoff að dúkka upp í myndbandi sem kemur út með söngsystrunum, þeim til nokkurrar skapraunar.
David varð fyrst frægur fyrir hlutverk sitt sem sjálfskipaður laganna vörður í sjónvarpsþáttaröðinni Knight Rider. Þá tók Baywatch-ævintýrið við og þegar það rann sitt skeið á enda gerðist Hasselhoff popstjarna.
Árið 2006 skildi hann við eiginkonu sína til 16 ára, leikkonuna, Pamela Bach.
