Innlent - miðvikudagur - 1.4 2009 - 18:22

Jón Steinsson: Rangar ákvarðanir Seðlabankans dýrari en Icesave

jon-steinsson.jpgSeðlabankinn tók ónýt veð, skuldabréf bankanna, fyrir mörg hundruð milljarða lánum til þeirra rétt fyrir hrunið í haust, segir Jón Steinsson dósent í hagfræði við Columbia háskólann.

Jón sagði í viðtali í Speglinum á RÚV í kvöld að tap þjóðarinnar vegna þessa verði miklu meira en vegna Icesave reikninganna og hefði aldrei þurft að gerast.  Hnn segir þetta einhver stærstu mistök stjórnvalda á síðasta ári.

Jón segir að Seðlabankinn hefði getað tekið aðrar eignir bankanna sem veð, t.d. útlánasöfn bankanna, lán bankanna til heimila og fyrirtækja – eignir sem voru einhvers virði og sparað með því íslensku þjóðinni nokkur hundruð milljarða króna. Hann segir þekkingarleysi bankastjóra Seðlabankansum að kenna og að þá hafi skort djúpan skilning á stöðunni.

„Þetta er stærsti baggi ríkisins, af öllu því sem gerðist,“ segir Jón.

Nánar hér á vef RÚV.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.