eyjan.is

Fimmtudagur 02.04.2009 - 10:35 - Ummæli ()

Blaðamenn í vanda. Sekt eða fang- elsisvist fyrir birta upplýsingar um vinnubrögð í Glitni og Kaupþingi?

kaupthing.jpgTveir blaðamenn á Morgunblaðinu gætu átt yfir höfði sér sekt eða fangelsisvist fyrir að birta í leyfisleysi trúnaðarupplýsingar úr lánabókum Kaupþings og Glitnis. Fjármálaeftirlitið telur að þeir hafi brotið lagaákvæði um þagnarskyldu.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Í fréttinni segir að blaðamennirnir, Agnes Bragadóttir og Þorbjörn Þórðarson, hafi í greinum sínum birt upplýsingar úr lánabók Kaupþings banka hf. annars vegar og Glitnis hf. hins vegar, Annars vegar er um að ræða upplýsingar um félagið Stím ehf og viðskipti þess við Glitni og FL Group. Hins vegar er um að ræða upplýsingar um lán sem eigendur Kaupþings veittu sjálfum sér og tengdum aðilum.

Upplýsingar þessar vöktu á sínum tíma almenna hneykslun og reiði í þjóðfélaginu.

Morgunblaðið segir að í bréfi til blaðamannanna frá FME komi fram að stofnunin geti lagt stjórnvaldssektir á þá sem gerist brotlegir við 58. gr laga um fjármálafyrirtæki. „Sektir sem lagðar eru á einstaklinga geta numið frá kr. 10 þúsund til kr. 20 milljónir. Þá getur það varðað sektum eða fangelsi allt að tveimur árum [...] Fjármálaeftirlitið metur hvort mál skuli kært til lögreglu eða því lokið með stjórnvaldsákvörðun hjá stofnuninni,“ segir í bréfinu. Reynist brot meiriháttar beri FME að vísa þeim til lögreglu en viðurlögum sé beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi.

Fram kemur í blaðinu að Agnes og Þorbjörn hafa frest til 8. apríl nk. til að koma á framfæri andmælum, skýringum eða sjónarmiðum áður en FME tekur ákvörðun um framhald málsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is