Fimmtudagur - 2.4 2009 - 19:30 - Ummæli ()

FME í herferð gegn fjölmiðlum? Segir Eyjuna og sjónvarpsmann hafa brotið gegn þagnarskyldu

fme-141.jpgFjármálaeftirlitið boðsendi í dag ritstjóra Eyjunnar bréf þar sem fram kemur að það hafi til skoðunar hugsanlegt brot hans sem ábyrgðarmanns vefritsins á ákvæðum um þagnarskyldu í lögum um fjármálafyrirtæki með birtingu fundargerða Glitnisbanka á bloggi Egils Helgasonar 14. mars síðast liðinn. Þess er krafist að gögnin verði tafarlaust fjarlægð af vefnum.

Fjármálaeftirlitið segir að nú liggi fyrir að taka afstöðu til málsins og er ritstjóranum, Guðmundi Magnússyni, gefinn nokkurra daga frestur til að koma með skýringar  og andmæli. Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að það geti beitt stjórnvaldssekt í málinu eða kært birtingu efnisins til lögreglu og liggi allt að tveggja ára fangelsi við brotum af þessu tagi.

Efnislega sams konar bréf barst í dag til Kristins Hrafnssonar fyrrum fréttamanns á Stöð 2. Hann er talinn hafa brotið gegn þagnarskyldunni með ummælum í viðtali við Helga Seljan í Kastljósi í janúar síðast liðnum um lánafyrirgreiðslu Kaupþings til stórs viðskiptavinar.

Ljósmyndin sýnir þegar Kristinn tók við hinu boðsenda bréfi Fjármálaeftirlitsins í dag. Myndina tók Helgi Seljan.

Athygli vekur að í bréfinu til Eyjunnar er vísað til laga um prentrétt til að rökstyðja ábyrgð ritstjóra Eyjunnar. Lögin fjalla hins vegar ekki um vefmiðla.

Undir bréf Fjármálaeftirlitisns rita starfsmennirnir Ragnar Hafliðason og Hákon Már Pétursson.

Kristinn Hrafnsson sagði í samtali við Eyjuna í kvöld að hann hefði í dag haft samband við fjölmiðlafulltrúa Fjármálaeftirlitsins, Sigurð G. Valgeirsson, til að forvitnast um hve víða bréf af þessu tagi hefði farið. Kristinn sagði að Sigurður hefði sagt sér að hann hefði enga vitnesku um málið og fyrst lesið um það í Morgunblaðinu í dag, en þar er sagt frá bréfi til tveggja starfsmanna blaðsins eins og Eyjan greindi frá fyrr í dag.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar