Magnús Ármann: Skuldaði 24 þúsund milljónir í árslok 2007 – staðan versnað síðan
DV segir frá því í dag að Magnús Ármann, einn útrásarvíkinganna svokölluðu, hafi skuldað rúmlega tuttugu og fjögur þúsund milljónir í lok ársins 2007 í gegnum félög sín Maggi ehf., Sólmon ehf., Materia Invest ehf. og Imon ehf.
Imon ehf. er stærsti hluthafi Byrs sparisjóðs, en umræddar skuldir ná aðeins yfir árið 2007. Ársreikningur liggur ekki fyrir vegna ársins 2008, en þremur dögum fyrir bankahrun fékk Imon ehf. kúlulán upp á níu milljarða króna fyrir kaupum á bréfum í Landsbankanum.
Fjármálaspekingar segja stöðu félaganna hafa versnað síðan 2007 en ekki sé auðvelt að gera sér grein fyrir hversu háar skuldirnar séu á núvirði.
Þrjú félaganna eru skráð á Laufásvegi 69, heimili Magnúsar Ármann. Fjórða félagið, Materia Invest, er skráð á Valhúsabraut 15.
Magnús Ármann á að baki ævintýralega sögu að sögn DV, en hann fór frá því að eiga „nektar“-staðinn Óðal yfir í að kaupa helmingshlut í Karen Millen, einu þekktasta tískuvörufyrirtæki heims. Þaðan lá leiðin í Sparisjóð Hafnarfjarðar, sem síðan breyttist í Byr, og síðan FL Group.
Nú virðist Magnús Ármann hins vegar eiga lítið eftir nema skuldir ef litið er á ársreikninga félaga hans, segir í DV.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
