Þriðjudagur - 7.4 2009 - 19:59 - Ummæli ()

Athugasemd frá Stoðum við frétt Eyjunnar 7. apríl 2009

Eftirfarandi athugasemd hefur borist frá Stoðum:

Í frétt Eyjunnar í dag „AMX: Nauðasamningar þýða að hneykslismálum Stoða (FL Group) verður sópað undir teppi” vísar Eyjan í fuglahvísl AMX.is þar sem fyrirhugaðir nauðasamningar Stoða eru gerðir að umtalsefni. AMX heldur því fram að allar kröfur lánardrottna Stoða umfram eina milljón króna verði afskrifaðar um 95%, spyr hvernig Glitnir og Landsbanki NBI geti réttlætt það fyrir kröfuhöfum sínum og eiganda, og heldur því fram að með nauðasamningum verði ýmis málefni Stoða, sem sætt hafa gagnrýni, aldrei dregin fram í dagsljósið.

Stoðir gera eftirfarandi athugasemdir við ofangreint:

1. Það er villandi að halda því fram að allir kröfuhafar þurfi að afskrifa 95% krafna sinna. Frumvarp að nauðasamningum lýtur einvörðungu að kröfum ótryggðra kröfuhafa. Tryggðir kröfuhafar, sem eiga veð í nær öllum eignum Stoða, ber eðlilega meira úr býtum en ótryggðir kröfuhafar. Það endurspeglast í þeirri staðreynd að varfærið mat á eignum Stoða miðast við að verðmæti eigna nemi nú um 24-28% af skuldum.

2. Um ástæður þess að núverandi eignastaða Stoða er ekki betri en raun ber vitni, ætti ekki að þurfa að fjölyrða. Eignir hafa hríðlækkað í verði um allan heim sl. hálft ár. Í tilfelli Stoða voru eignir metnar u.þ.b. jafnar skuldum fyrir 6 mánuðum síðan, eftir að stærsta eign félagins, 32% eignarhlutur í Glitni að verðmæti 75 milljarða króna, varð verðlaus. Síðan þá hafa engar eignir verið seldar en verðmæti þeirra hefur engu að síður lækkað um u.þ.b. 160 milljarða króna. Á sama tíma hafa skuldir Stoða hækkað um 55 milljarða króna, vegna gengisbreytinga og áfallinna vaxta.

3. Stærstu lánardrottnar félagsins styðja fjárhagslega endurskipulagningu Stoða, sem meðal annars felur í sér að félagið leiti nauðasamninga við ótryggða kröfuhafa. Í byrjun febrúar 2009 var myndað svokallað kröfuhafaráð Stoða sem hefur, ásamt stjórn og starfsmönnum Stoða, unnið að málefnum félagsins með hagsmuni lánardrottna að leiðarljósi. Í kröfuhafaráðinu sitja fulltrúar stærstu kröfuhafa félagsins, þ.e. fulltrúar frá Nýja Kaupþingi, Gamla Glitni, Landsbanka NBI, fulltrúi erlendra lánveitanda að sambankaláni og fulltrúi ótryggðra kröfuhafa.

4. Staða stærstu lánardrottna Stoða er að sjálfsögðu mismunandi, eftir því hvert núverandi verðmæti veðtrygginga þeirra er, en allir eru þeir sammála um að gjaldþrot þjóni ekki hagsmunum þeirra. Því styðja stærstu lánardrottnar áætlanir um endurskipulagningu Stoða, sem byggist á þeim grundvallaratriðum að núverandi hlutafé félagsins verður afskrifað að öllu leyti og kröfuhafar félagsins verða eigendur alls hlutafjár í Stoðum. Líkt og hjá öðrum fjármálafyrirtækjum í svipaðri stöðu eru bundnar vonir við að mun meira fáist fyrir eignir félagins eftir nokkur ár og að ekki sé ráðlegt að selja eignir við núverandi markaðsaðstæður. Um er að ræða skynsama ákvörðun á viðskiptalegum forsendum, sem þjónar hagsmunum kröfuhafa, og þar með eigendum og lánardrottnum kröfuhafa.

5. Fyrirhugaðir nauðasamningar Stoða hafa ekkert að gera með þau atriði í rekstri félagsins sem sætt hafa gagnrýni. Til að mynda er rekstrarkostnaður FL Group árið 2007 eitt þeirra atriða sem skattrannsóknarstjóri hefur til skoðunar og standa vonir til að niðurstaða fái í þeirri rannsókn á næstunni. Það er ennfremur hluti af nauðasamningsferlinu að yfirfara einstaka þætti í rekstri félagins síðustu misserin. Kosin verður ný stjórn Stoða þegar og ef nauðasamningur verður staðfestur og getur sú stjórn, skipuð fulltrúum lánardrottna sem þá verða orðnir eigendur félagsins, kannað alla þætti starfseminnar ef vilji hennar stendur til þess.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar