Innlent - þriðjudagur - 7.4 2009 - 19:32

Sjálfstæðisflokkur fékk 30 milljónir frá FL Group 2006, 3 dögum áður en styrkjahámark tók gildi

fl-group-logo.jpgFL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um styrkinn til rannsóknar ásamt öðrum málefnum FL Group.

Fréttstofa Stöðvar 2 skýrði frá þessu í kvöld og segist hafa séð gögn um að 30 milljónir króna hafi verið yfirfærðar af reikningi FL Group inn á reikning Sjálfstæðisflokksins 29. desember árið 2006.  Reikningur fyrir greiðslunni var ekki gefinn út fyrr en einhverjum mánuðum síðar, samkvæmt heimildum Stöðvar 2, sem segja Hannes Smárason, þáverandi forstjóra FL Group, hafa gefið vilyrði fyrir greiðslunni.

1. janúar 2007  tóku gildi lög um að stjórnmálaflokkum væri óheimilt að taka við hærri fjárstyrkjum en sem næmu 300 þúsund krónum frá einstökum lögaðila.
Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir að flokkurinn hafi ekki frekar en aðrir flokkar verið með opið bókhald fyrir þann tíma og að flokkurinn hyggist að svo stöddu ekki tjá sig um einstök fjárframlög til flokksins sem áttu sér stað fyrir setningu laganna.

Stöð 2 segir Kjartan Gunnarsson, einn helsta bandamann Davíðs Oddssonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, hafa verið starfandi við hlið framkvæmdastjóri flokksins, Andra Óttarssyni á þessum tíma og rifjar upp að Davíð Oddsson hafi líkt FL Group meðal annars við bandaríska stórfyrirtækið Enron og fjármálahneykslið í kringum það á sínum tíma – og nefndt félagið Flenron. Þá hafi Baugur á þessum tíma verið í hópi helstu hluthafa í FL Group.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.

Facebook vinir