Þriðjudagur - 7.4 2009 - 16:42 - Ummæli ()

Gylfi Magnússon í Bandaríkjunum: Íslenskt viðskiptalíf vel starfhæft

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra ávarpaði í dag fund Íslensk-ameríska verslunarráðsins í Scandinavia House í New York.

gylfi11.jpgGylfi rakti aðdraganda bankahrunsins á Íslandi, gerði grein fyrir aðgerðum íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og fór yfir stöðu og langtímahorfur í íslensku efnahagslífi. Þetta kemur fram í tilkynningu viðskiptaráðuneytisins.

Gylfi undirstrikaði að íslenskt viðskiptalíf væri starfhæft þrátt fyrir það mikla efnahagsáfall sem riðið hefði yfir. Hann sagði að  þó að næstu tvö ár yrðu erfið þá væru langtímahorfur á Íslandi tiltölulega jákvæðar. Íslensk fyrirtæki væru því reiðubúin að eiga áframhaldandi gott viðskiptasamstarf við Bandaríkin.

Í gær átti viðskiptaráðherra fundi í Washington D.C. í bandaríska utanríkisráðuneytinu, viðskiptaráðuneytinu og á skrifstofu viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna. Auk þess hitti hann fulltrúa bandaríska fjármálaráðuneytisins og AGS. Tilgangur fundanna með bandarískum stjórnvöldum var að gera grein fyrir framvindu efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS, og gera grein fyrir langtímahorfum í íslensku efnahagslífi.
 
Í ferð sinni til Bandaríkjanna veitti viðskiptaráðherra bandarískum fjölmiðlum viðtöl um efnahagsástandið og langtímahorfur á Íslandi, m.a. Fox News, Bloomberg og CNBC.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar