eyjan.is

Miðvikudagur 08.04.2009 - 13:00 - Ummæli ()

Bíllaus lífsstíll: Vilja að fyrirtæki styrki fólk sem notar ekki einkabíla á leið til og frá vinnu

img_3169.JPGSamtök um bíllausan lífsstíl hvetja fyrirtæki til að greiða starfsfólki, sem ekki nýtir einkabíla á leið til og frá vinnu, samgöngustyrki. Í síðustu viku sendu samtökin út rúmlega 200 bréf þessa efnis á öll stærstu fyrirtæki landsins. Kristján Möller samgönguráðherra fékk fyrsta bréfið afhent persónulega og er myndin sem fylgir tekin við það tækifæri.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum. Bréfið og aðrar upplýsingar um bíllausan lífsstíl og stefnu þeirra má lesa á vefsíðu samtakanna.

Fram kemur í tilkynningunni að Samtök um bíllausan lífsstíl hafa það meginmarkmið að stuðla að bættum ferðavenjum á höfuðborgarsvæðinu og telja það afar þýðingarmikið málefni í nútímasamfélagi.

Bent ert á að flestir Íslendingar fari til vinnu einir á einkabíl, með tilheyrandi umferðarþunga, slæmum loftgæðum og kostnaði, sem lendi á þeim sjálfum, vinnuveitendum þeirra og samfélaginu öllu. Þær ferðavenjur verði ekki skýrðar með landfræðilegri legu, veðráttu, þéttleika byggðar eða öðrum utanaðkomandi þáttum eins og dæmi frá nágrannalöndum okkar sanni, vandamálið liggi í hefðum og hugarfari. Fjölmargir aðrir ferðamátar séu í boði, svo sem að taka strætó, hjóla, ganga, skokka, fara á línuskautum eða í samfloti með öðrum, sem allir séu hagkvæmari, stuðli að bættri lýðheilsu og bæti umhverfi okkar.

Í


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is