Björgólfsfeðgum persónulega stefnt vegna fimm milljarða skuldar við Nýja Kaupþing
Í viðskiptablaði Fréttablaðsins í dag er sagt frá því að Björgólfi Guðmundssyni, fyrrverandi formanni bankaráðs Landsbankans, og syni hans, Björgólfi Thor Björgólfssyni, hafi verið stefnt vegna vangoldinnar skuldar upp á fimm milljarða króna við Nýja Kaupþing.
Upphaflega varð skuldin til í tengslum við kaup Samson eignarhaldsfélags í eigu Björgólfsfeðga, á hlut ríkisins í Landsbankanum í október 2002.
Kaupverð var rúmir 11 milljarðar króna, en ekki liggur fyrir hve stór hluti skuldarinnar nú er höfuðstóll og hvað vextir.
Björgólfur Guðmundsson var formaður bankaráðsins allt frá því Samson tryggði sér kjölfestuhlutinn þar til ríkið tók hann til sín á ný. Við ríkisvæðinguna átti félagið tæplega 42% hlut í bankanum.
Þar sem feðgarnir eru í persónulegum ábyrgðum vegna skuldarinnar verður gengið að eignum þeirra fáist ekki upp í kröfuna. Ef annar stendur ekki undir ábyrgð verður gengið á hinn.
Skuldin, sem er innheimt af íslensku innheimtufyrirtæki, heyrir undir Nýja Kaupþing, en ekki skilanefnd gamla bankans.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var feðgunum send stefna um miðjan mars, eða fyrir um þremur vikum, en Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, vill ekki tjá sig um viðskipti bankans við einstaka menn.
Það er þó ljóst að Björgólfsfeðgar skulda íslenska ríkinu fimm milljarða króna vegna bankakaupanna fyrir sjö árum, þó svo bankinn hafi verið greiddur að fullu á sínum tíma.
Einnig mun ljóst vera að Björgólfur eldri eigi ekki eignir til að standa undir ábyrgðinni, en Björgólfur Thor á eignir erlendis.
Hann er að auki stærsti hluthafi í Actavis hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hafa farið fram viðræður um uppgjör skuldarinnar sem engu hafa skilað, en talsmaður Björgólfsfeðga, Ásgeir Friðgeirsson, sagði þá ekki vilja tjá sig um málið á þessum tímapunkti.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
