eyjan.is

Fimmtudagur 09.04.2009 - 11:44 - Ummæli ()

Björgólfur Thor um skuldina við Nýja Kaupþing: Ætla ekki að hlaupast undan ábyrgð á skuldinni

bjorgolfurthorbjorgolfsson.jpgBjörgólfur Thor Björgólfsson segist ekki ætla að hlaupast undan ábyrgð á hárri skuld hans og föður hans, Björgólfs Guðmundssonar, við Nýja Kaupþing, en til skuldarinnar var stofnað í tengslum við kaup þeirra á Landsbankanum á sínum tíma.

Frá málinu var greint í frétt Eyjunnar í morgun.

Björgólfur Thor leggur áherslu á að ekki hafi verið stefnt vegna skuldarinnar eins og fullyrt var í Fréttablaðinu í morgun og viðræður hafi staðið yfir síðustu vikur og mánuði um greiðslu hennar. Hann segist ekki hafa í  hyggju að hlaupast undan ábyrgð á greiðslu skuldarinnar, frekar en annarra skulda við íslenskar og erlendar lánastofnanir.

Loks segir Björgólfur Thor að í frétt Fréttablaðsins sé gerð ósmekkleg tilraun til að gefa til kynna að hann og faðir hans skuldi íslenska ríkinu peninga vegna einkavæðingar Landsbanka Íslands. Það sé bæði villandi og undarlegt. Kaupin hafi verið að fullu greidd árið 2003.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is