Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður segist ekki hafa óskað eftir styrk frá neinu ákveðnu fyrirtæki eða einstaklingi til Sjálfstæðisflokksins, enda hefði hann hvorki umboð til þess né áhuga. Fréttaskýring Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu í dag sé því röng.
Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins kl. 16 í dag.
Fréttastofa RÚV kveðst hins vegar hafa heimildir fyrir því Guðlaugur Þór hafi haft frumkvæði að styrkjum frá FL -Group og Landsbankanum í árslok 2006. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hafi Guðlaugur Þór Þórðarson ekki svarað fyrirspurnum fréttastofunnar í dag. Forysta Sjálfstæðisflokksins hafi ekki heldur svarað fyrirspurnum um málefni Guðlaugs.
Í frétt Morgunblaðsins í dag er því sama haldið fram, að Guðlaugur hafi haft forgöngu um að útvega flokknum þessa styrki í árslok 2006.
Fram kom í frétt RÚV að Guðlaugur Þór segi að hið rétta sé að hann hafi fengið nokkra menn í flokknum til að aðstoða skrifstofu flokksins við fjársöfnun, síðari hluta ársins 2006, á meðan hann lá sjálfur á sjúkrahúsi. Hann taki fram að hvorki Agnes né aðrir blaðamenn Morgunblaðsins hafi séð ástæðu til að hafa samband við sig. Guðlaugur segist aldrei hafa þekkt til fjármála flokksins og ekki sóst eftir því. Hann harmi að nafn sitt sé dregið með þessum hætti inn í umræðuna og velti því fyrir sér hvaða hvatir liggi þar að baki.
