Föstudagur - 10.4 2009 - 12:10 - Ummæli ()

Sigurjón ákvað einn 25 milljóna styrk. Virðist hafa vitað um fram- lag FL Group til Sjálfstæðisflokks

sigurjon.jpgFimm milljóna króna styrkur Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins á árinu 2006 var afgreiddur með hefðbundnum hætti af bankastjórum í samráði við forystu bankaráðsins. 25 milljóna króna viðbótarstyrkur var hins vegar ákveðinn af Sigurjóni Þ. Árnasyni einum.

Samkvæmt traustum heimildum Eyjunnar tók Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, einn ákvörðun um 25 milljóna króna styrkinn. Bankaráðið kom þar hvergi nærri og ekki heldur hinn bankastjórinn, Halldór J. Kristjánsson.

Aðrir styrkir bankans til stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna í prófkjörum voru í hefðbundnum farvegi þar sem bankaráðsmenn voru í vitorði og bankastjórar framkvæmdu. Þar var gengið út frá sameiginlegri ákvörðun sem ætlað var að tryggja jafnvægi á milli einstaklinga og flokka. þessir styrkir eru sagðir gjarnan hafa verið 500 þúsund krónur en undir það síðasta voru styrkir til flokka á kosningaári farnir að nema fjórum til fimm milljónum króna.

Í frétt Pressunnar um málið í dag segir að Sigurjón hafi gefið þær skýringar innan bankans eftir á, að hann hafi talið mikilvægt að jafna með hinu stóra framlagi hátt framlag sem FL Group hefði gefið til Sjálfstæðisflokksins. Pressan telur að þetta þýði að Sigurjóni og ef til vill fleirum innan Landsbankans hafi á þeim tíma verið kunnugt um það framlag til Sjálfstæðisflokksins og verið skýrt frá því af fjáraflamönnum Sjálfstæðisflokksins, væntanlega í þeim tilgangi að ná í meira fé frá bankanum.

Þó Geir H. Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi í yfirlýsingu sagst einn bera alla ábyrgð á og samþykkt að flokkurinn tæki við styrkjum FL Group og Landsbankans eru enn áhöld um það hver innan flokksins hafi haft  forgöngu um öflun styrkjanna. Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður hefur neitað frétt Morgunblaðsins þess efnis að hann hafi haft frumkvæðið.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar