Könnun: Meirihluti landsmanna andvígur umsókn um aðild að Evrópusambandinu
Meirihluti landsmanna er andvígur umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Stuðningsmönnum aðildar fækkar frá fyrri könnunum.
Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem greint er frá í dag.
Þeim fækkar heldur sem vilja viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Nú segjast 45,6% fylgjandi viðræðum, en fyrir tveimur vikum vildu 46,6% viðræður.
Samkvæmt könnuninni eru 54,4% landsmanna andsnúin aðildarviðræðum en 45,6% hlynnt þeim. Nokkur munur er á afstöðu fólks eftir búsetu. Alls vilja 51,8% höfuðborgarbúa aðildarviðræður, en 36,9% þeirra sem búa á landsbyggðinni.
Fréttablaðið segir að kjósendur Samfylkingarinnar skeri sig úr hvað varðar fylgi við aðildarviðræðu. Eru 86,5% þeirra hlynnt viðræðum.
Fram kemur í blaðinu að hringt var í 800 manns þriðjudaginn 7. apríl og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt var: Á Ísland að sækja um aðild að Evrópusambandinu. 77,5 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
