Sunnudagur - 12.4 2009 - 10:05 - Ummæli ()

Fjármál flokkanna: Beðið eftir upplýsingum frá Framsókn um styrktaraðila

sigmundurdavid.jpgFjármál stjórnmálaflokkanna eru áfram í deiglunni nú þegar aðeins eru tæpar tvær vikur til kosninga. Framsóknarflokkurinn hefur enn ekki farið að dæmi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins og birt nöfn þeirra fyrirtækja sem styrktu flokkinn árið 2006 með framlögum sem voru hálf milljóna króna eða hærri. Varaformaður flokksins, Birkir Jón Jónsson, segir unnið að því að afla þessara upplýsinga.

Athygli hefur vakið að nýr formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur ekkert tjáð sig um fjármál flokkanna og fjölmiðlum hefur ekki tekist að ná sambandi við hann. Vísir segir ástæðuna vera þá að hann sé lasinn, liggi í lungnabólgu.

Samfylkingin hefur tilkynnt að hún ætli að birta upplýsingar um framlög til einstakra flokksdeilda árið 2006, en þær hafa enn ekki komið. Framlög á landsvísu árið 2006 hafa verið birt.

Víða heyrast kröfur um að fjármál stjórnmálaflokkanna verði opnuð enn frekar aftur í tímann. Margir bloggarar hafa til að mynda varpað fram þeirri spurningu af hverju upplýsingar sem nú hafa verið gefnar séu bundnar við árið 2006. Þeir telja eðlilegra að styrkir yfir lengra tímabil verði upplýstir. Líklegt er að mikil andstaða verði við þá kröfu innan flokkanna og er í því sambandi bent á að mjög flókið og tafsamt geti orðið að afla samþykkis styrktaraðila frá fyrri árum sem treyst hafi því að trúnaður mundi ríkja um framlög þeirra.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar