Þriðjudagur - 14.4 2009 - 17:25 - Ummæli ()

Meirihlutasamstarfið í Grindavík aftur í ljúfa löð

grindavik.jpgBæjarfulltrúar Framsóknarflokks og Samfylkingar í Grindavík hafa sammælst um að halda samstarfi áfram út kjörtímabilið og um að ráða Maggý Hrönn Hermannsdóttur í starf skólastjóra Hópsskóla. Meirihlutinn segist vinna að undirbúningi skólastarfsins í samstarfi við fræðslu- og uppeldisnefnd, nýjan skólastjóra og foreldra barna í væntanlegum grunnskóla, þar sem skólastarf á að hefjast í janúar 2010. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu fulltrúanna á vef Grindavíkurbæjar.

Meirihlutasamstarfið sprakk fyrir páska vegna kröfu Samfylkingingarfólks um að bæjarfulltrúi þeirra, Garðar Pál Vignisson sem jafnframt er forseti bæjarstjórnar, yrði ráðinn skólastjóri Hópsskóla. Framsóknarmenn vildu hinsvegar að Maggý Hrönn yrði ráðin.

Flokkarnir segjast nú jafnframt sammála um að við ráðningar í störf hjá bæjarfélaginu verði framvegis farið eftir faglegri úttekt.

Yfirlýsingin í heild er eftirfarandi:

„Bæjarfulltrúar B og S lista í Grindavík hafa sammælst um að halda samstarfi áfram út kjörtímabilið. Flokkarnir eru sammála um að ráða Maggý Hrönn Hermannsdóttur í starf skólastjóra Hópsskóla. Skólastarf mun hefjast í janúar 2010. Mun meirihlutinn vinna að undirbúningi skólastarfsins í samstarfi við fræðslu- og uppeldisnefnd, nýjan skólastjóra og foreldra barna í væntanlegum grunnskóla.

Flokkarnir eru jafnframt sammála um að við ráðningar í störf hjá bæjarfélaginu verði farið eftir faglegri úttekt í framtíðinni. Það er sameiginleg niðurstaða að með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi sé brýnast að flokkarnir haldi samstarfi áfram og vinni saman að brautargengi margra mikilvægra mála sem eru í deiglunni hjá bæjaryfirvöldum. Því höfum við nú leyst úr öllum ágreiningi sem upp hefur komið og ætlum að vinna saman sem liðsheild að velferðarmálum okkar góða bæjarfélags.

Jóna Kristin Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi S-lista
Hörður Guðbrandsson, bæjarfulltrúi S-lista
Hulda Jóhannsdóttir, formaður Samfylkingarfélags Grindavíkur
Petrína Baldursdóttir, bæjarfulltrúi B-lista
Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi B-lista
Björgvin Björgvinsson, formaður Framsóknarfélags Grindavíkur.“


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar