Þriðjudagur - 14.4 2009 - 08:45 - Ummæli ()

Skuldir stjórnmálaflokka 475 milljónir í lok ársins 2007 – sjálfstæðismenn með mesta styrki

althingi-sett3.jpgMorgunblaðið segir frá því í dag að skuldir stjórnmálaflokkanna fimm, sem eiga fulltrúa á þingi, hafi numið 475 milljónum króna í lok árs 2007.

Framsóknarflokkurinn skuldaði 154 milljónir, Samfylkingin 124 milljónir, Vinstri hreyfingin – grænt framboð 91 milljón, Sjálfstæðisflokkurinn 76 milljónir og en Frjálslyndi flokkurinn tæpar 30 milljónir króna.

Árið 2007 þáði Sjálfstæðisflokkurinn 57 milljónir króna í styrki frá lögaðilum eða fyrirtækjum, en enginn annar flokkur þáði jafn mikið í styrkjum.

273 lögaðilar styrktu Sjálfstæðisflokkinn samkvæmt reikningum og meira en helmingur þeirra veitti flokknum leyfilega hámarksupphæð, eða 300.000 krónur.

Á sama tíma styrktu 180 lögaðilar Framsóknarflokkinn, 147 Vinstri græn og 111 Samfylkinguna.

Viðmælendur Morgunblaðsins innan flokkanna töldu flesta styrkjanna hafa borist seinnihluta árs 2006, sem mætti rekja til sveitarstjórnarkosninganna á fyrrihluta ársins, en sumir töldu ljóst að lagasetningin hefði hvatt til þess að afla hærri styrkja, ekki síst
með kosningaár framundan.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar