Lögmaður: Yfirlýsingar Evu Joly um sekt fjármálamanna gera hana vanhæfa við rannsókn hrunsins
Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður segir í grein í Morgunblaðinu í dag að sakamálarannsókn á bankahruninu sé stefnt í hættu með opinberum yfirlýsingum Evu Joly, ráðgjafa saksóknara bankahrunsins, um að íslenskir fjármálamenn hafi skotið undan fé, að yfirgnæfandi líkur séu á því að stjórnendur bankanna hafi gerst brotlegir við lög og að furðulegt sé að stjórnendur og eigendur fjármálafyrirtækjanna hafi ekki verið handteknir og hjá þeim gerð húsleit.
Brynjar segir að með yfirlýsingum af þessu tagi sé brotið gegn hlutlægnisreglu rannsakanda og ákæruvalds samkvæmt ákvæðum laga um rannsókn sakamála. Hann segir að það sé sennilega einsdæmi í réttarsögu þessa lands, að minnsta kosti í seinni tíð, að þeir komi að rannsókn sakamála, sem lýst hafi yfir sekt þeirra sem rannsaka skuli.
„Þessi fyrrverandi rannsóknardómari frá Frakklandi er því fullkomlega vanhæfur til að koma að rannsókn sérstaks saksóknara. Ráðningin getur hugsanlega valdið því að rannsókn og möguleg saksókn ónýtist, þar sem sakborningar hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð,“ skrifar Brynjar Níelsson.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
