eyjan.is

Laugardagur 18.04.2009 - 12:23 - Ummæli ()

Guðlaugur Þór Þórðarson: Ekki bara vegið að sjálfstæðisstefnunni heldur öllu sem íslenskt er

gudlaugurthor211.jpgBjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á fundi í Valhöll í morgun að nú þyrfti að vinna litla sigra á hverjum degi, sem söfnuðust saman í eitthvað stórt.

Þetta kemur fram á mbl.is.

Bjarni sagði að við óvenju mörg verkefni væri að glíma og Sjálfstæðisflokkurinn í óvenjulegri stöðu; á leið í kosningar án þess að vera í ríkisstjórn. Þá sagði hann andstæðinga flokksins frekar vilja gera upp fortíðina en ræða lausnir á aðkallandi vanda.

Illugi Gunnarsson sagði að markmiðið ætti að vera að auka fylgi við stefnu flokksins um 1% á dag fram að kosningum.

Guðlaugur Þór Þórðarson sagðist fullyrða, að ástæðan fyrir því að vinstri flokkarnir boðuðu til kosninga á þessum tíma væri að þannig gætu þeir valdið Sjálfstæðisflokknum mestum skaða.
Það eina sem sameinaði vinstri flokkana væri andstaða við sjálfstæðismenn.

Kostirnir hefðu ekki verið jafn skýrir lengi og nú. Vinstri flokkarnir byðu upp á gamaldags leið ríkisafskipta sem Íslendingar hefðu löngu hafnað. Í kosningunum nú væri ekki aðeins vegið að Sjálfstæðisflokknum og sjálfstæðisstefnunni heldur öllu því sem væri íslenskt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is