eyjan.is

Mánudagur 20.04.2009 - 08:32 - Ummæli ()

Jöklabréf hugsanlega notuð til að fjármagna álver Norðuráls í Helguvík og fleiri fyrirtæki

helguvik.jpgStjórnendur Norðuráls hafa átt í viðræðum við Seðlabankann undanfarnar vikur um að nota andvirði jöklabréfa og annarra eigna erlendra aðila hér á landi til að fjármagna álver Norðuráls í Helguvík.

Þannig væri hægt að losa eigendur krónubréfa úr klóm gjaldeyrishafta, án þess að það valdi gengishruni krónunnar.

Heimildir Fréttablaðsins herma að Norðurál myndi þá taka við krónum frá eigendum jöklabréfanna, sem vegna gjaldeyrishafta komast ekki úr landi með fé sitt.
Skuldabréf í dölum yrðu gefin út á móti en hluti tekna álversins, sem verður í dollurum, yrði notaður til að greiða niður bréfin.

Ágúst Hafberg, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli, segir í Fréttablaðinu að fyrirtækið geti vel hugsað sér að fara þessa leið, málið sé þó ekki langt komið enn sem komið er.

Seðlabankinn hefur rætt þetta við fleiri fyrirtæki, meðal annars Landsvirkjun.

Ekki er ljóst hversu háar upphæðir erlendir aðilar eiga hér á landi í jöklabréfum og öðrum eignum, en talið að eignirnar næmu 400-500 milljörðum krónar þegar gjaldeyrishöft voru sett á hér á landi síðastliðið haust.

Heimildir Fréttablaðsins herma að til að byrja með verði reynt að losa um í kringum 100 milljarða króna.

Eigendur jöklabréfanna keyptu þá skuldabréf í erlendri mynt af íslenskum fyrirtækjum og fengju þau greidd eftir nokkur ár.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is