eyjan.is

Fimmtudagur 23.04.2009 - 17:51 - Ummæli ()

Björn Bjarnason: Vinnubrögð Ingibjargar Sólrúnar í ESB málum á svig við stjórnarsáttmálann

bjorn-bjarnasonisg.jpgBjörn Bjarnason segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi farið á svig við stjórnarsáttmála fyrri ríkisstjórnar með þeim starfsháttum og starfsemi í utanríkisráðuneytinu í tengslum við undirbúning að ESB aðildarumsókn sem hún lýsi í Morgunblaðsgrein í dag.

Hann sakar hana jafnframt um að hafa gefið eftir í Icesave málinu í skiptum fyrir hraðferð inn í ESB.

Utanríkismálanefnd Alþingis hefur verið boðuð til fundar í fyrramálið til að ræða trúnaðargögn um samskipti íslenskra og breskra stjórnvalda í Icesave-málinu.

Björn segir lýsingu Ingibjargar í Morgunblaðsgreininni „með miklum ólíkindum og aðeins til marks um, að þar hafi verið unnið á svig við stjórnarsáttmálann.“

Í greininni segir Ingibjörg að í sinni tíð í utanríkisráðuneytinu hafi verið vandlega undirbúið að Ísland gæti sótt um aðild að ESB um leið og slík ákvörðun lægi fyrir. Sérstakar samráðsnefndir hagsmunaaðila um sjávarútveg, landbúnað og byggðamál hafi starfað á vegum ráðuneytisins undanfarin misseri. „Drög að samningsmarkmiðum hafa verið unnin og við höfum markvisst ræktað sambönd við vinveitta lykilaðila í helstu aðildarríkjum og í framkvæmdastjórninni í Brussel. Við höfum ekki efni á að sóa neinum tíma meir. Umsókn þyrfti að komast á borð ráðherraráðsins í júní. Svíar taka við forystu í sumar og Carl Bildt utanríkisráðherra gjörþekkir stöðuna hér sem við höfum margsinnis rætt persónulega. Hið sama á við um stækkunarstjórann og fiskveiðistjórann. Næsta ríkisstjórn á lag sem kemur ekki aftur í bráð og Ísland er vel undirbúið,“ segir í grein Ingibjargar.

Björn segir á vefsíðu sinni í dag að Ingibjörg hafi gefið eftir í Icesave málinu í skiptum fyrir loforð Breta um hraðferð inn í ESB. Hún hafi ekki viljað að haldið yrði til haga lögfræðilegum fyrirvörum gagnvart Bretum og Evrópusambandinu vegna Icesave því leysa ætti málið á pólitískum grundvelli.

„Nú hefur breski Evrópumálaráðherrann, flokkssystir Ingibjargar Sólrúnar,  kynnt hina pólitísku lausn: Íslendingar gefa kröfur sínar vegna Icesave eftir og við hjálpum Íslendingum að komast með hraðlest inn í Evrópusambandið. Breski ráðherrann telur víst, að með þessum orðum sé komið til móts við eindregin tilmæli íslenska utanríkisráðuneytisins, enda hafi Bretar fengið skilaboð um slíkt frá íslenska utanríkisráðherranum. Breski ráðherrann bætir því svo við í bréfinu til Austin Mitchell, þingmanns í Grimsby og efasemdarmanns um ESB, að nú skuli hann átta sig á gildi Evrópusambandsins, því að aðild Íslands að því opni Bretum að nýju rétt til veiða á Íslandsmiðum.“

Björn segir að vitneskja um ofangreind viðhorf breskra stjórnvalda til Icesave og Evrópusambandsaðildar Íslands hafi komið fram í samskiptum forsvarsmanna Indefence-hópsins svonefnda við Austin Mitchell og að talsmaður hópsins sé sannfærður um, að Bretar hafi ákveðið að bjóða Íslendingum aðstoð við að fá aðild að Evrópusambandinu ekki síst til að lama íslensku utanríkisþjónustuna í kröfugerð sinni í Icesave-deilunni.

Boðaður hefur verið fundur í utanríkismálanefnd Alþingis í fyrramálið, þar sem rædd verða trúnaðargögn um Icesave-málið. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður nefndarinnar, segir í samtali við DV í dag, að á fundinum verði farið yfir trúnaðargögn úr forsætisráðuneytinu sem afhent hafa verið rannsóknarnefnd Alþingis sem rannsakar aðdraganda og orsakir bankahrunsins.

Meðal gagnanna eru minnisblöð um samtöl Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, við breska ráðamenn í byrjun október. DV segist hafa óskað eftir upplýsingum frá Seðlabanka Íslands og Mervyn King, seðlabankastjóra Bank of England. DV segir því jafnframt haldið fram að Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, og hann hafi ræðst við í byrjun október síðastliðins. Bank of England hefur svarað og ber við að ekki sé venjan að gefa upplýsingar um samtöl. Engin svör hafa borist frá Seðlabankanum, en meðal annars var spurt um hugsanlegar upptökur af símtölum sem varpað gætu ljósi á málið, þar á meðal hin harkalegu viðbrögð Breta.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is