Föstudagur - 24.4 2009 - 14:24 - Ummæli ()

Nýtt barnatryggingakerfi lagt til. Tekjutengdar barnabætur. Dæma megi sameiginlega forsjá

agust-olafur-agustsson1.jpgNefnd um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum sem félagsmálaráðherra skipaði 2007 leggur til að  sérstakar barnatryggingar komi í stað barnabóta, barnalífeyris, mæðralauna og annarra bóta frá ríkinu til barnafjölskyldna. Nefndin kynnti tillögur sínar í morgun.

Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður, formaður nefndarinnar segir að lagðar séu til mjög róttækar breytingar á stuðningi við barnafjölskyldur. „Barnatryggingar munu aukast til muna til þeirra sem hvað mest þurfa á þeim að halda s.s. lágtekjufólks, atvinnulausra, ungra og barnmargra fjölskyldna. Við erum að leggja til að fólk með háar eða frekar háar tekjur hætti að fá barnabætur svo það sé meira í spilunum fyrir hina sem neðar eru í tekjustiganum. Með þessu verður kerfið bæði réttlátara og skynsamlegra út frá þeirri stöðu sem þjóðarbúið er í,“ segir Ágúst.

Hann segir að heildarkostnaðurinn við kerfisbreytinguna verði sá hinn sami og í núgildandi kerfi, þó þetta gæti hækkað greiðslur til ákveðinna foreldra umtalsvert. Einstætt foreldri með tvö börn og 250 þúsund krónur í tekjur myndi fá um 20 þúsund krónum meira í barnatryggingu en hann er fær í núgildandi kerfi.

Tillögurnar taka líka til sifjamála og umgengnismála barna. Til dæmis er gert ráð fyrir að dómurum verði veitt heimild til að dæma foreldrum sameiginlega forsjá barns gegn vilja annars foreldris sé það talið þjóna hagsmunum barnsins og að forsjárlausir foreldrar hafi sama rétt til aðgangs að skriflegum upplýsingum um barn sitt og það foreldri sem fer með forsjána.

Auk þess er lagt til að þeir sem telja sig vera föður barns geti höfðað ógildingar/vefengingarmál þegar um feðrað barn er að ræða en það er ekki hægt núna og rýmkaðar yrðu heimildir fyrir afa, ömmur og stjúpforeldri til umgengi.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar