Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra kallar ásakanir Björns Bjarnasonar vegna framgöngu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í Icesave málinu vitleysu, „eins og margt sem hann segir um þessi mál“. Hann segir gagnrýni Björns beinast að formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni, sem taldi sem formaður utanríkismálanefndar vel hafa verið haldið á íslenskum hagsmunum í málinu.
Utanríkismálanefnd kom saman í morgun til að ræða Icesave málin.
Björn hélt því fram á vefsíðu sinni í gær að Ingibjörg hafi ekki viljað að haldið yrði til haga lögfræðilegum fyrirvörum gagnvart Bretum og Evrópusambandinu vegna Icesave því leysa ætti málið á pólitískum grundvelli, og taldi loforð Breta um hraðferð inn í ESB vera ástæðu þess. Björn benti á undirbúning Ingibjargar sem utanríkisráðherra á því að Ísland gæti sótt um aðild að ESB væri til marks um þetta.
Össur bendir hins vegar á á vefsíðu sinni í dag, að Bjarni Benediktsson, sem gjörþekkti málavöxtu, hafi haft allt aðra skoðun og rifjar upp á vefsíðu sinni ummæli Bjarna: “Það er alveg ljóst að sú leið sem valin var og sá farvegur sem málið er í núna mun alveg örugglega skila okkur hagstæðari niðurstöðu en við hefðum fengið með því að láta reyna á rétt okkar og ef við hefðum síðan mögulega tapað þeirri þrætu fyrir dómstólum. Það er alveg öruggt.”
Össur segir „erfitt að verjast þeirri tilhugsun, að skrif Björns hafi beinlínis þann tilgang að aðrir, sem einnig gjörþekkja málið, dragi fram þá staðreynd, að linkulegustu afstöðuna í Icesave hafði einmitt núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins. Sú afstaða er enn ein ástæða til þess að núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins er ekki hægt að treysta til að fara með hagsmuni þjóðarinnar.“
